Samtökin International Association of Outsourcing Professionals, skammstafað IAOP hafa gefið út spá yfir alþjóðlega þróun verkefna á sviði vistunar árið 2009. Spáin er byggð á áliti sérfræðinga samtakana og annarra sem hafa yfirgripsmikla þekkingu á útvistun verkefna. Árið 2009 er gert ráð fyrir að eftirfarandi áherslusvið verði í brennidepli þeirra sem vista verkefni hjá öðrum eða taka slík verkefni að sér. Til skýringar: Vistun verkefna byggist á samstarfssamningi aðila sem felur öðrum verkefni með útvistun. Sá aðili sem tekur að sér verkefnið innvistar það.
1 – Útvistun verkefna til fyrirtækja í nærumhverfi. Fyrirtæki sem áforma útvistun verkefna á árinu 2009 eiga auðveldara um vik að ráða starfsmenn með sérþekkingu en undanfarin ár. Aukið framboð sérfræðinga í vistunarmálum auðveldar fyrirtækjum að útvista verkefni til fyrirtækja í nærumhverfi sínu. Þetta á sérstaklega við í fjármála- og þekkingariðnaði. Aukin áhersla á heimamarkað mun draga úr útvistun til landa eins og Kína og Indlands sem undan farin ár hafa geta boðið fram hagstæð kjör á ýmiskonar sérfræðivinnu og framleiðslu.
2 – Alþjóðleg óvissa leiðir til óstöðugleika í útvistun verkefna. Þegar á heildina er litið hægir á útvistun verkefna 2009. Fyrirtæki leitast við að draga úr öllum reksturskostnaði. Þau munu einbeita sér að núverandi markaði og að treysta fyrirliggjandi viðskiptasambönd. Framboð á hæfu starfsfólki dregur jafnframt úr þörf fyrir útvistun og fyriræki fresta slíkum áformum. Í samningum um útvistun verður lögð áhersla á að stytta samningstíma og auka sveigjanleika, lækka verð og að umfang viðskipta geti tekið breytingum. Krafa eykst um að hagnaði vegna hagræðingar verði skipt milli inn- og útvistunaraðila.
3 – Áhersla á faglega hæfni og sérþekkingu. Fyrirtæki sem útvista verkefnum munu auka kröfu um verðlækkun og að draga úr áhættu í viðskiptum. Innvistunarfyrirtæki sjá fram á lægri tekjur og minni hagnað. Þetta eykur þrýsting á að þau taki til í eigin rekstri og kostnaðarlækkun. Ráðgjafar á sviði útvistunar verða að sýna fram á árangur, fagmennsku og virðisaukandi ráðgjöf. IAOP gerir ráð fyrir aukinni spurn eftir ráðgjöfum með COP (Certified Outsourcing Professional) viðurkenningu sem samtökin veita.
4 – Sérhæfð og stefnumiðuð fyrirtæki njóta ávinnings. Í breyttu viðskiptaumhverfi verða til ný tækifæri fyrir sterk og vel staðsett fyrirtæki sem hafa með sér öflugt samstarf um vistun verkefna. Fyrirtæki sem hafa vandað til verka í útvistun og vinna með ”þeim bestu í greininni á sviði innvistunar” munu njóta ávinnings af sterkri heild.
5 – Áhersla á félagslega ábyrgð og umhverfisvæn ferli. Við útvistun verkefna verður í vaxandi mæli spurt um félagslega ábyrgð hjá báðum aðilum samstarfsins. Gerð verður krafa um að báðir aðilar vistunarsamninga sýni fram á félagslega ábyrgð t.d. gagnvart starfsmönnum. Áhersla verður lögð á að innvistunarfyrirtæki sýni fram á umhverfisvæn vinnuferli samhliða félagslegri ábyrgð.
Um IAOP. Samtökin International Association of Outsourcing Professional eru alþjóðleg. Þau beita sér fyrir eflingu þekkingar og fagmennsku þeirra aðila sem starfa við útvistunarráðgjöf. Í samtökunum eru um 40 þúsund aðilar, fyrirtæki og rágjafar með sérþekkingu á útvistun/ innvistun verkefna. Takmark samtakana er að bæta þekkingu og vinnuferli við útvistun og stuðla að aukinni menntun og hæfni sérfræðinga sem starfa við ráðgjöf á þessum vettvangi.
Höfundur sem er félagi í samtökunum IOAP þýddi og endursagði greinina sem birt er á heimasíðu samtakana.